Ađalvalmynd

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

!

23. febrúar 2011 klukkan 00:44
DÓRI KISI!¨!
VILT ÞÚ DRULLA ÞÉR HÉRNA ÚTAF ;)

DANKE SCHÖN

jól :O

21. október 2008 klukkan 09:29
Já ég veit að þegar þið lesið fyrirsögnina hugsið þið, andskotinn er
hún byrjuð á þessari vitleysu aftur, og já það er rétt... Jólaskapið
mitt í algjöru hámarki þessa dagana! en ég meina kommon það
eru bara 64 dagar í þau, mér finnst við halda þau alltof stutt, það
er bara algjört kjaftæði að hlusta bara á jólalög í desember, ég
meina þetta eru langbestu lögin og það er synd að heyra þau bara
í útvarpinu á jólunum!
Eins og til dæmis Ég hlakka svo til það er ógeðslega flott, og það er
virkilega leiðinlegt að heyra það bara á jólunum, synd og skömm synd
og skömm! Og svo ég tali nú ekki um Þú komst með jólin til mín með
Bjögga og Ruth Reginalds það er sko absolute uppáhalds jólalagið mitt,
og bara uppáhaldslagið mitt yfir höfuð. Ég elska að hlusta á það í desember
í Ipodnum sitjandi út í glugga horfandi á sjóinn með jólaseríuna í kringum mig.
Og er ekki mest kósý í heim að sitja í bakaríinu að drekka kakó og horfa á
jólaskraut... já ég held það nú!
Ég veit að þið haldið að ég sé klikkuð en hugsið ykkur .. eftir 40 daga
er 1.des! Pælið aðeins í því ;D
Já og ég gleymdi algjörlega Christmas time með Backstreet boys! Já
það er bara best sko :D
Eftir 64 daga verð ég syngjandi Í kvöld jólin eru að koma... með Jónsa...
sjæææsen! eða ég verð syngjandi það alveg líka þessa 64 daga sem eru
þangað til... en anyways...
ég bið að heilsa

love

Sveppir

10. október 2008 klukkan 10:03
Já halló

Ég hef ákveðið að taka mér tíma frá að gera ekki neitt tímanum mínum til að blogga svona aðeins um sveppi.

Sveppir eru merkilegt fyrirbæri, þá er hægt að nota í mat, þá geturu fengið þá, ferska, í dós eða þurrkaða, það er rosalega gott að steikjas sveppi og krydda þá og setja þá á hamborgaran sinn eða á samlokuna sína, einnig eru þeir mjög góðir á beikon sælu.

Þá er einnig hægt að nota ef maður vill fara í vímu, en ég mæli ekki með því, af því að það er extreamly hættulegt og maður getur verið bara geðveikt mikið grænmeti í hausnum.

Svo eru sveppa skraut oft notað í jólakransa og annað skraut.

Ef ég væri sveppur mundi ég kosta 20.156 krónur í bónus

já það er gott að vera sveppur!

Helgin og afmćli .. jeij

21. september 2008 klukkan 22:36

Já halló!

Ákvað að blogga smá þar sem ég hef nákvæmlega ekkert að gera... 
Hef samt ekkert sérstak að segja svo þetta verður mjög tilgangslaust blogg...  eða eru blogg það annars ekki alltaf.. hehe ,, anyways.. Helgin var fín... var að vinna til sjö á föstudaginn og fór þá heim, svo um tíu fór ég og náði í bílin hans pabba og skellti mér á rúntin, fyrst með önnu og jóni erni, svo stíg og arnari, og að lokum martheni og elísabetu. Samt skutlaði Atla í og úr partý, gulli kom smá rúnt og svo skutlaði ég einhverjum manni sem ég man ekki hvað heitir heim... flipp.. annars var þetta mjög fínt.. en ég og tási, sem ég hef ákveðið að kalla bílinn fórum heim um tvö.

Á laugardaginn vaknaði ég tíu, fór út um hálf tólf og skilaði Tása heim, fór svo að vinna klukkan eitt til þrjú,  kom þá heim og letaðist...  fór aftur að vinna sjö.. var búin rétt fyrir ellefu. Þá skottaðist ég heim, henti mér í djammgallan og fór svo til Davíðs þar sem Steiney sæta beið eftir mér, Berglind átti líka að vera ða bíða en hún var út í bæ, en hún kom... það var svaka gaman  : ) Svo rétt um eitt fórum við á Edinborg og það var bara gaman ... Ég skottaðist heim um hálf fjögur eftir heldur fjörlegar samræður við marga.. ég græddi líka helv. vel þarna :D

Dagurinn í dag er búinn að vera hreint út sagt ömurlegur, ég vaknaði ellefu, hélt að ég væri að deyja... er búin að liggja í allan dag, lifa mest megnis á pepsi og malti.. já lífið mitt er æðislegt þessa dagana, og ég á að fara í sögupróf á morgun, en ég sé ekki alveg fram á að geta komist í skólan, ég ætla samt að biðja til guðs um að ég geti það.. ég get ekki misst að helv. prófinu ;S

Stjörnuspáin mín í dag ;
Krabbi: Í dag eiga sér stað stutt og listræn augnablik
tenginga sem aldrei verða endurtekin. Þú getur hins
vegar alltaf kallað fegurð þeirra fram í hugann.
Nei hún passar ekkert við daginn minn :/ ekki var ælan mín neitt sérlega listræn áðan, en sure ég á eftir að muna eftir henni alltaf ;‘D haha... smekklegt ég veit..

En svo liggur leið mín líklegast suður fyrstu helgina í okt...  fæ þá að sjá fullt af fólki aftur sem ég hef saknað óstjórnanlega mikið .. jeij mí .. og svo auðvitað versla.. og svo vorum við andrea sæta að spá í að taka eitt sveitt djamm..  jeij us :D

En allavegana.. 93 dagar í jólin ;O jeiiij

Og svo afmælis bloggin fyrir næstu daga, því ég á ekki eftir að blogga aftur í bráð :D

Í dag á sæta gullið mitt hann Kristján Eðvald afmæli, hann er tveggja ára pjakkur.. shit maður, það eru tvö ár síðan ég fékk símtal í stærðfræði tíma hjá Bryndísi Bjarnason og hún barasta leyfði mér ekki að fara fram þótt það væri hálfur tími eftir til að fá að vita hvort systir mín væri búin að eiga þegar mamma hringdi.. svo ég hljóp út hringdi í mömmu og náði í Erlu Rut og fékk að vita að þessi gullfallegi piltur væri fæddur.. shiii, og auðvitað þarf það að fylgja söguni að ég var pínu skömmuð þegar ég kom aftur inní tíma.. en mér var sama.. ég var orðin móður systir :D

Á morgun 22 á Júlíana sæta gull afmæli, hún verður 17 ára og fær bílpróf :O Hún Júlíana sæta mín er krútt og ég elska hana í tætlur !

23 september er stór dagur! Í fyrsta lagi á Guðmundur Hrannar litli sæti Estherar son afmæli.. jább hann verður tveggja ára líka :D Ég man vel eftir þegar hún Esther átti, ég var ða fara í Bónus partý þegar ég fékk fréttirnar... og fékk mynd í síman og montaði mig allt kvöldið :D jájá lífið var frábært.. og enn var stutt í litla systkynið mitt sem var að bumbast :D
Í öðru lagi á Magga mín afmæli, hún verður 17 ára :D Já magga er ein besta vinkona mín eins og hefur kannski komið fram áður .. ég get ekki byrjað að lýsa hvað hún er frábær! Og ég ætla ekkert að vera að reyna það.. því hún veit það  : ) ég elska þig allavegana í tætlur!

24 september fyrir tvemur árum, ég fékk símtal frá pabba.. sem sagði að ég væri búin að eignast lítin bróður, og auðvitað trúði ég kallinum ekki, því bumban hennar sirrýjar var stelpa.. jájá .. pabbi eignast ekki stráka.. svo ég fór upp á sjúkrahús og tjékkaði .. og jájá, þetta var strákur, ég fór að hugsa hvort hann væri rangfeðraður .. en komst svo að þeirri niðurstöðu að beibið væri of líkt mér þegar það eltist aðeins að hann bara gæti alls ekki verið rangfeðraður :P En já semsagt á miðvikudaginn verður litli sætasti og uppáhalds bróðir minn tveggja ára, vá hvað tíminn líður!

En til hamingju með afmælið þið öll.. ég elska ykkur öll í tætlur!

En allavegna ég ætla að láta mig hverfa því þetta er orðið of langt,  og það nennir pottþétt engin að lesa þetta..

Heyrumst ; *

blogg ? hvađ er nú ţađ

14. september 2008 klukkan 17:07
Já hæ :) Ákvað að blogga, ég er nefninlega að bíða eftir að fara í vinnuna klukkan 6.. flipp
Allavegana af mér er lítið að frétta, en samt ekki :P
Hmm ég koma heim í ágúst og er búin að vera hér í mánuð í dag :O shit hvað tíminn er fljótur að líða ..! Ég er byrjuð í skólanum, í 21 einingu sem er alveg nóg, frekar mikið eiginlega.. er ekki alveg að meika þetta.. en ég meina þetta er ég ... ég get allt ;D Ég er byrjuð að vinna í krílinu, það er ihh skítsæmilegt.. eða þú veist ekki, hef nákvæmlega ekkert að gera í vinnuni og sit og horfi á gossip girl eða læri allan daginn.. á milli þess sem ég geri sælur, afgreiði eða borða.
síðan ég kom heim er ég búin að gera allsherjar hreingerningu í herberginu mínu, rústa því aftur... fara á busaball, taka þátt í ruddabolta, ruddabolta hóf, vinna óhóflega mikið og eyða alltof mikið af peningum...  Á næstu helgi er svo óvissu ferðin... ;D það verður vonandi gaman :)
Já og svo er ég að skipta um síma og fara yfir til Nova... ég fýlaða í tætlur :D fæ nýja gellu síman minn í næstu viku.. hann er beisiklý eins og sá sem ég keypti mér í vor.. sá sem snillingurinn ég týndi ...
Ég er líka búin að þurfa að kveðja tvær vinkonur mínar..
Möggu beib sem fór á laugarvatn.. en ég meina.. ég sé hana aftur í haust... sem er gott sem er gott :)
Svo þurfti ég að kveðja Erluna mína.. sem fór aðeinslengra en laugarvatn.. en hún flaug til ítalíu og ætlar að dveljast þar í 10 mánuði.. öfund ? uhh já!
En allavegana. ég ætla ða fá mér að borða..


viku :o

06. ágúst 2008 klukkan 21:03

okey, ég bara verð að blogga, svo margt sem ég hef að segja :)

það er bara vika og tveir dagar þangað til ég fer heim, finnst það rosalega skrítið að allt sumarið sé bara búið ;S þetta hefur líka liðið rosalega hratt :) finnst að það hafi verið í síðustu viku sem ég var í rosalega vondu skapi heima á ísafirði og hringdi í afa og bað um vinnu ... og fékk hana :P en nei nei það var víst í maí :D
það er líka rosalega margt búið að gerast í sumar, haminjudagar, bílpróf, afmæli, ættarmót, BRYGGJUHÁTÍÐ!!, reykjavík, rúntar, partý og vinna... 

það eru frekar blendnar tilfinningar að fara heim, ég hlakka alveg rosalega til að fara og vera heima, geta hitt mömmu, önnu, berglindi  og alla hina á hverjum degi og fá elsku rúmið mitt aftur, en ég á samt eftir að sakna þess að vera hérna, geta hitt sylvíu, þórdísi og alla á hverjum degi, vera í sjoppuni og fíflast með önnu og dagrúnu í vinnuni og bara allt :/ en ég hlakka svo til að fara í skólan, hlakka til að fara í íslensku, lesa njálu og sitja í gryfjuni í frímó og spjalla við stelpurnar mínar og gantast og gera okkur af fíflum yfir því hvað við hlægjum asnalega :D ég hlakka til að fara á böll og fá maju í mí :D

en já, af mér eru líka fleiri fréttir, ég tók stórt skref í dag og tók úr mérnaflalokkin, fyrir fullt og allt held ég, gæti fengið bakþanka í kvöld, en það er spurning :D

en ætla að fara að reyna að pakka, er sko að pakka dótinu sem ég nota sjaldan og hafa bara það nauðsynlegasta eftir... það á pottþétt ekki eftir að ganga vel! hehe

en já ég er farin að reyna :)

love á ykkur ; **

sara sem er að koma heim eftir VIKU!!!

humm

10. júlí 2008 klukkan 15:52
okey, ég ætla aðblogga eitthvað örlítið þótt að það lesi enginn þessa blessuðu síðu, mér einfaldlega leiðist bara ;)
síðustu tvo daga er ég búin að vera á kvöldvöktum og á tvær eftir, þannig að dagarnir mínir eru búnir að snúast um að vakna á hádegi, horfa á disney channel til hálf fjögur, hafa mig til og labba í vinnuna og vera komin hálf fimm, þetta er innihaldsríkt finnst ykkur ekki ? En í dag vaknaði ég hálf tíu, duglega (A) og getiði hvað ég gerði :D já það er rétt, ég kveikti á sjónvarpinu og stillti á disney channel, eftir að hafa horft á tvö mjög sniðuga þætti af hannah montana og einn af oddparents dæminu .. sofnaði ég og svaf til hálf eitt.. :D  svo kom amma í hádegismat og ég fékk mér að borða...  og svo aftur disney channel nema núna hætti ég að horfa tvö og tók upp úr töskum og er búin að dansa stanslaust með tónlist í eyrunum.. ef einhver hefði séð hérna inn áðan hefði hann sjálfsagt haldið að ég væri geðveik :D

En á helgini var gaman, á fimmtudaginn sem sagt fékk ég far með dagný systur vestur og beint á rúntinn með mögguni minni, erla júlíana marthen og maja droppuðu samt líka inn en við magga vorum frá 10 til 2 stanslaust .. :D við erum dúúúúglegar ... svo á föstudaginn vaknaði ég 10, kíkti smá í vinnuna til pabba og sirrýar, fór svo heim til pabba og þar var svanhildur.. var þar til 3, fékk samt að prufa rauða jeppan hans pabba 2 og já .. það var spes ;'D  fórum á núp þá, eða þú veist í sveitina til afa og ömmu, skelltum þar upp fellihýsi og fengum okkur að éta... fengum fullt fullt af ættingjum í heimsókn.. á laugardaginn var sjálft ættarmótið.... frekar lélegt... og maturinn var hræðilegur... en það var samt gaman í hlöðuni ða horfa á fulla fólkið dansa ;'D
á sunnudaginn borðaði ég fullt af nammi og keyrði með heiðari, esther og guðmundi sætasta hingað og við fengum okkur hamborgara í sjoppuni og svo skutluðu þau mér heim....
var svo veik á mánudaginn og svo hóft innihaldsríka lífið :D

en já, ætla að fara að fara í vinnu, fá mér kannski ís áður ..

love love love

sara ; *

Nú bara ég

30. júní 2008 klukkan 23:01
Litla ég! og þá meina ég litla ég er komin með BÍLPRÓF! OMG OMG OMG

Hver er vondur bloggari ?

23. júní 2008 klukkan 15:33
Okey, ég viðurkenni það alveg fúslega, ég er 
ömurlegur bloggari.. en ég meina það er sumar
 svo að ég nenni ekki að sitja í tölvuni alla daga 
:D hehe, en allavegana síðan ég bloggaði síðast
 er ég búin að fara heim og aftur á hólmavík,
 vinna, fara í pottana og sitja á krossarabrautini 
tvisvar :D svo er elsku anna mín búin að eiga 
afmæli og er komin með bílpróf og alles :D
Svo er ég bara komin aftur heim, fer samt 
aftur á fimmtudaginn þegar ég er búin að taka
verklegaprófið ;D já, ég verð 17 ára á sunnudaginn :D
það verður bara æðislegt skal ég segja þér :)

en ætlaði bara að láta vita að ég er lifandi og 
svona...

love ;*

Er ég kem heim á Ísafjörđ <3

09. júní 2008 klukkan 22:56
Já ég  er sko að koma heim á elsku Ísafjörðinn minn, ég er búin að fá nóg af hólmavík í bili, eða nei nú er ég að ljúga, ég er ekki komin með leið á hólmavík! ég er hins vegar komin með leið á einveru, mikilli fjarlægð frá öllum vinum mínum og fjölskyldu og ég er með sjúkleg fráhvarfseinkenni frá elsku bakarí-inu mínu! Ef elsku Þórdísin mín væri ekki á hólmavík væri ég dauð! og ég er að deyja hægum dauða því hún skrapp til reykjavíkur... þessvegna er ég að koma heim :)

Allavegana... helgin var æði, mostly útaf því að elsku besta anna mín var hérna! hún fór samt í gær og það var alveg ömurlegt að þurfa að kveðja hana, mömmu, gunni og erlu í sjoppuni, átakanlegt alveg :( feel my pain :D

Allavegana... ætla ekki að hafa þetta lengra :)
sé ykkur öll heima á morgun eða hinn
koss og knús
sararós

s
xfg

Fallegasti Ísafjörðurinn minn <3
ó hvað ég sakna hans mikið!!

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Sara Rós Sigurđardóttir
  • Stađur: Ísafjörđur
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: kríliđ
  • Hjúskaparstađa: Lausu
  • Um mig: :)
  • Annađ: Ef ţú kemst ekki e-đ á frekjuni , ţá kemstu ekki ţangađ á annađ borđ

Innskráningar kubbur